Jöklar a
Stærð: 50x50 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Jöklar eftir Snædísi Högnadóttir er abstrakt þríverk en jafnframt geta verkin staðið eitt og sér. Verkin eru innblásin af síbreytileika jöklanna og þeirri kyrrð sem fylgir nærveru þeirra. Blár undirtónn liggur í grunninum og vísar í dýpt og kulda íssins, á meðan hvít þekja yfir hluta verkanna mýkir formið og dregur fram andstæður. Verkin endurspegla stöðuga umbreytingu, hvernig jöklar mótast, hreyfast og breytast með tíma og umhverfi. Þrátt fyrir sameiginleg einkenni hefur hver jökull sína sérstöðu, sem birtist í ólíkri áferð og flæði innan verkanna."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Snædís Högnadóttir
Snædís Högnadóttir eða SOGNA er fædd í Vestmannaeyjum en uppalin í Kópavogi. Hún kemur af listamannafjölskyldu og hefur listin alltaf verið í henni. Sem barn teiknaði hún mikið, málaði, skrifaði ljóð og sögur og hannaði föt. Þegar sköpunarhæfileikum er ekki sinnt mun þörfin alltaf brjótast fram á einhverjum tímapunkti í lífi listamannsins og hefur Snædís farið aftur í að rækta sköpunarhæfileikana.
Snædís sækir innblástur úr litum og fegurð náttúrunnar, úr fjöllunum, lífsreynslunni og tilfinningum. Náttúran er stórkostlega mögnuð og vill hún skapa verk sem hver og einn getur tengt við á sinn hátt. . . Lesa meira
