Refund policy
Almennir skilmálar Apolloart
1. Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu www.apolloart.is (hér eftir „Apolloart“. Eigandi Apolloart er Ep1 ehf, kt. 550218-0460. Gilda þessir skilmálar m.a. um kaupleigu þar sem á við.
Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Apolloart annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við nýskráningu á vefsíðu Apolloart teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu eftir gildistöku þeirra.
Apolloart selur vörur eða þjónustu til kaupanda á vefsvæði sínu ásamt því að bjóða kaupanda að fá vöruna senda heim til sín eða sækja til seljanda. Kaupandi hefur leyfi til að nota Apolloart og þá þjónustu sem þar er boðið upp á í samræmi við skilmála þessa og þær aðgangstakmarkanir sem Apolloart setur.
Sé kaupandi einstaklingur, sem kaupir vöru eða þjónustu utan atvinnustarfsemi, gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003 um kaupin. Lögin gilda hins vegar hvorki um kaup einstaklinga, sem kaupa vöru eða þjónustu í atvinnuskyni eða í tengslum við starf sitt né kaup fyrirtækja. Að auki skal kaupandi vera orðinn 16 ára þegar kaupin eiga sér stað.
2. Fyrirvarar og afturköllun pöntunar
Verð á vefsvæði Apolloart og í útsendum póstum eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Apolloart áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð.
Apolloart mun upplýsa kaupanda um þessi atriði eins fljótt og auðið er eftir pöntun og mun eftir atvikum koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna. Ellegar er endurgreiðsla framkvæmd í samræmi við 2. mgr. 9. gr. þessara skilmála.
3. Persónuvernd og aðgangur
Um meðferð persónuupplýsinga fer skv. lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Á heimasíðu Apolloart má finna persónuverndarstefnu félagsins, þar sem fjallað er um hvernig Apolloart vinnur persónuupplýsingar, hvaða réttindi skráðir einstaklingar hafa o.s.frv.
Óheimilt er að falsa nafn eða aðrar persónuupplýsingar við notkun Apolloart. Verði kaupandi eða seljandi uppvís að slíku eða öðru sviksamlegu athæfi við kaup eða sölu verður það tilkynnt lögreglu. Apolloart áskilur sér enn fremur rétt til að takmarka eða loka fyrir aðgang að Apolloart ef grunur leikur á að kaupandi eða seljandi hafi falsað nafn eða aðrar persónuupplýsingar við skráningu.
4. Innskráning, pöntun og afhending
Pöntun kaupanda á Apolloart er bindandi þegar hann hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu.
Apolloart er skuldbundið að afgreiða pöntun kaupanda að undanskildum tilvikum sem nefnd eru í 2. gr. þessara skilmála. Eigi þær undantekningar ekki við skal Apolloart senda kaupanda staðfestingu á kaupunum með tölvupósti. Jafnframt sendir Apolloart kaupanda afrit af reikningi eftir að greiðsla berst frá kaupanda. Kaupanda er bent á að kynna sér vel staðfestingu á pöntun þegar hún berst.
5. Afhending vöru
Í kaupferlinu velur kaupandi sér afhendingarleið. Apolloart og upplýsir kaupanda með tölvupósti og á vefsvæði Apolloart hvenær vara er væntanleg til hans.
Velji kaupandi að fá sendingu með Póstinum ber Apolloart ekki ábyrgð á afhendingartíma sendingarinnar. Pósturinn getur ekki sent stórar sendingar heim að dyrum alls staðar á landinu. Nánari upplýsingar um þjónustu póstsins má finna á heimasíðu Póstsins.
6. Yfirferð á vöru
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina skal hann að byrja á því að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning.
Telji kaupandi að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu skal hann senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti eða hafa samband við þjónustuver Apolloart. Apolloart áskilur sér rétt að staðreyna slíkar tilkynningar innan 7 daga frá móttöku þeirra.
7. Greiðsla og staðfesting á skilmálum
Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann hafi kynnt sér og þekki skilmála þessa. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt gildandi skilmálum Apolloart hverju sinni sem og öðrum skilyrðum sem félagið kann að setja.
Kaupandi getur innt greiðslu af hendi á eftirfarandi vegu:
- Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu.
- Millifærsla: Ef óskað er eftir að greiða með millifærslu þarf kaupandi að millifæra yfir á reikning Apolloart og setja í tilvísun/stutt skýring númer á pöntun. Ef Apolloart hefur ekki móttekið greiðslu innan tveggja daga falla kaupin sjálfkrafa niður.
- Reiðufé: Einungis er í boði að greiða með reiðufé ef kaupandi velur að sækja verk hjá listamanni. Ef óskað er eftir að greiða með reiðufé þarf kaupandi að greiða fyrir verkið við móttöku þess. Sé heimsending valin er ekki hægt að greiða með reiðufé við móttöku.
- Netgíró: Kaupandi samþykkir að nota þjónustu Netgíró. Einnig er hægt að nýta sér raðgreiðslur með Netgíró. Frekari upplýsingar um virkni þjónustunnar má finna á Netgiro.is.
- Aur: Kaupandi greiðir í gegnum Aur appið. Frekari upplýsingar um virkni þjónustunnar má finna á Aur.is
- Inneign: Ef kaupandi á inneign hjá Apolloart getur hann greitt pöntun að hluta eða öllu leyti með inneign sinni.
8. Skilaréttur
Að öllum neðangreindum skilyrðum uppfylltum getur kaupandi getur skilað vöru til Apolloart, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu, að undanskildum gjafabréfum.
- Tilkynning um skil á vöru: Kaupandi vöru skal tilkynna Apolloart um skil innan 14 daga frá kaupum.
- Reikningur fyrir kaupum: Kaupandi vöru skal framvísa reikningi eða kvittun fyrir kaupum.
- Ástand vöru: Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegu ástandi ásamt umbúðum. Þá þurfa allir aukahlutir að fylgja með vörunni. Apolloart áskilur sér rétt til að athuga hvort varan uppfylli þau skilyrði áður en skil eru samþykkt.
9. Endurgreiðsla
Komi til endurgreiðslu vegna skila kaupanda á grundvelli 8. gr. skal Apolloart endurgreiða kaupanda vöruna með sama greiðslumáta og viðskiptavinur notaði við kaup.
Endurgreiðsla er þannig framkvæmd með bakfærslu á kredit- eða debetkorti, niðurfellingu á Netgíró kröfu, innlögn á bankareikning eða með inneign hjá Apolloart sem kaupandi getur ráðstafað að vild í næstu kaupum hjá Apolloart.
10. Framlengdur skilaréttur jólagjafa
Apolloart býður upp á framlengdan skilafrest á jólagjöfum skv. tilkynningu frá Apolloart.
Kaupandi skal þá tiltaka í skilaboðum við kaup á verki að um sé að ræða jólagjöf. Skilaboðin eru sett inn í körfunni á vefnum. Einnig getur kaupandi sent skilaboðin í tölvupósti á netfangið art@apolloart.is innan þriggja daga frá kaupum.
11. Skil á jólagjöf og endurgreiðsla
Handhafi verks skal að öðru leyti uppfylla skilyrði 8. gr. um reikning fyrir kaupum ásamt því sem verkið skal uppfylla áskilnað 8. gr. um ástand vöru. Að þeim skilyrðum uppfylltum getur handhafi verks annað hvort:
- Skilað verki og fengið gjafabréf Apollo art fyrir upphæð þess, eða
- Skipt verki fyrir annað verk. Sé nýja verkið á lægra verði fær handhafi mismuninn í formi gjafabréfs, en sé verðið hærra skal hann greiða mismuninn.
Að uppfylltum skilyrðum 8. gr. má jafnframt skila jólagjöf innan 14 daga frá kaupum.
12. Galli
Ef vara er gölluð skal Apolloart bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Kaupandi á rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst Apolloart sannanlega innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð var við galla.
Apolloart mælir með því að kaupandi sendi tölvupóst eða hringi í þjónustuver Apolloart sem fyrst frá því að galli uppgötvast. Apolloart sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Apolloart áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð innan 7 daga.
13. Ábyrgð
Sé kaupandi einstaklingur, sem kaupir vöru eða þjónustu utan atvinnustarfsemi, gilda ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003 um tímabil ábyrgðar vegna galla. Sé kaupandi fyrirtæki eða einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í atvinnuskyni eða í tengslum við starf sitt, er ábyrgð á galla 6 mánuðir frá dagsetningu kaupa.
Ábyrgð fellur úr gildi ef vara hefur verið opnuð, átt við hana án samþykkis Apolloart, eða ef rekja má skemmd til illrar eða rangrar meðferðar á vörunni.
Apolloart er ekki skylt að sjá um viðgerð á vöru, gefa afslætti eða skipta út vöru eftir að ábyrgðartíma lýkur. Apolloart áskilur sér rétt til að staðreyna að galli heyri undir ábyrgðarskilmála innan 7 daga frá tilkynningu um galla.
Beri Apolloart ábyrgð á gallanum skal fyrirtækið bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa.
14. Eignarréttur
Kaupandi eignast ekki verk fyrr en kaupverð er greitt að fullu. Við fullnaðargreiðslu yfirfærist eignarréttur yfir á kaupanda verks.
15. Breytingar á skilmálum
Apolloart áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda eða birting á vefsíðu Apolloart telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.
16. Ágreiningur
Rísi ágreiningur á grundvelli þessara skilmála er heimilt að bera hann undir Kærunefnd þjónustu- og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu.
Dómsmál á grundvelli þessara skilmála skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
17. Gildistaka
Skilmálar þessir gilda frá 18. september 2023.