Terms of service
Skilmálar Apolloart um kaupleigu
1. Almennt
Um kaupleigu gilda skilmálar þessir sem og almennir skilmálar Apolloart.
2. Upplýsingar og tilkynningarskylda
Viðskiptavinur skal vera fjárráða og veita Apollo art allar nauðsynlegar persónuupplýsingar, þ.m.t. fullt nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang. Skal viðskiptavinur jafnframt tilkynna Apollo art ef einhverjar breytingar verða þar á, t.d. þegar hann flytur. Um meðferð persónuupplýsinga fer skv. lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
3. Leigutími og leigugjald
Leigutími verks er að lágmarki 3 mánuðir og að hámarki 36 mánuðir. Fyrsta leigugreiðslan skal innt af hendi við upphaf kaupleigu og eru leigugreiðslur síðan inntar af hendi fyrir fram mánaðalega í heimabanka. Gjalddagi þeirra er 1. eða 15. hvers mánaðar og eindagi 15 dögum síðar. Vangoldnar leigugreiðslur eru sendar í innheimtu degi eftir eindaga og skal viðskiptavinur bera þann kostnað sem til fellur vegna þess.
Leigugjald er háð söluverði verks og leigutíma. Mánaðaleg greiðsla getur þó aldrei numið lægri upphæð en 3.000 kr. að viðbættu færslu- og seðilgjaldi. Upphæð þessi getur tekið breytingum skv. verðskrá.
Sé ekki staðið skil af leigu áskilur Apollo art sér rétt til að krefjast þess að verki sé skilað tafarlaust og eftir atvikum með aðfarargerð á grundvelli laga um aðför nr. 90/1989. Skal viðskiptavinur bera þann kostnað sem til fellur vegna þess.
Leigugreiðslur fást ekki endurgreiddar, en við kaup á verki dragast leigugreiðslur sem hafa þegar verið inntar af hendi frá kaupverði verksins.
Velji viðskiptavinur heimsendingu skal hann greiða sendingarkostnað við móttöku. Ef sendingarkostnaður er ekki greiddur við móttöku áskilur Apollo art sér rétt til að bæta kostnaðinum við næstu leigugreiðslu.
4. Ábyrgð og eignarhald á verki á leigutíma
Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á listaverki á leigutíma og er skaðabótaskyldur ef verkið verður fyrir tjóni eða glatast á leigutímanum.
Listaverk telst eign listamannsins á meðan að leigutíma stendur eða þar til að söluverð hefur verið að fullu greitt. Listamaður getur því sett frekari takmarkanir og skilyrði fyrir leigu listaverks, en þau sem koma fram í þessum skilmálum.
5. Flutningur verka úr landi
Óheimilt er að flytja listaverk úr landi nema með skriflegu leyfi listamannsins. Þá skal viðskiptavinur jafnframt tilkynna Apollo art um flutninginn.
6. Skil á verki
Verki skal ávallt skilað í sama eða sambærilegu ástandi og umbúðum og viðskiptavinur tók við því í.
Starfsmaður Apolloart eða listamaður metur ástand verks þegar því er skilað. Ef listaverk hefur orðið fyrir tjóni skal viðskiptavinur annað hvort greiða fyrir viðgerðir á verkinu, sé það mögulegt að mati starfsmanns Apollo art eða listamanns, eða kaupa verkið á upprunalegu söluverði.
Óski viðskiptavinur eftir að segja upp samningi um kaupleigu áður en lágmarksleigutími er liðinn skal viðskiptavinur greiða leigu út lágmarksleigutímann.
7. Önnur ákvæði
Dómsmál á grundvelli þessara skilmála skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Neðangreind verð eru birt með fyrirvara um verðbreytingar:
Greiðslugjald – netbanki eða kort: 190 kr.
Greiðsludreifing: 0%
Viðvörunarbréf Apollo art eftir eindaga: 950 kr.
Greiðsla send í innheimtu: 2.000 kr.