Snædís Högnadóttir
Snædís Högnadóttir
Snædís Högnadóttir eða SOGNA er fædd í Vestmannaeyjum en uppalin í Kópavogi. Hún kemur af listamannafjölskyldu og hefur listin alltaf verið í henni. Sem barn teiknaði hún mikið, málaði, skrifaði ljóð og sögur og hannaði föt. Þegar sköpunarhæfileikum er ekki sinnt mun þörfin alltaf brjótast fram á einhverjum tímapunkti í lífi listamannsins og hefur Snædís farið aftur í að rækta sköpunarhæfileikana.
Snædís sækir innblástur úr litum og fegurð náttúrunnar, úr fjöllunum, lífsreynslunni og tilfinningum. Náttúran er stórkostlega mögnuð og vill hún skapa verk sem hver og einn getur tengt við á sinn hátt. . . Lesa meira
Jökulró
Stærð: 120x120 cm. Tækni: Akrýl á striga. "Jökulró er abstrakt verk sem er innblásið af þeirri kyrrlátu og rólegu tilfinningu sem yfir okkur fer þegar við horfum á jökulinn. Yfirnáttúruleg fegurð íssins fangar kyrrð og töfrandi ró náttúrunnar, á sama...
210.000 kr
Jökulbjarmi
Stærð: 120x120 cm. Tækni: Akrýl á striga. "Jökulbjarmi er abstrakt verk sem er innblásið af þeirri stórfenglegu birtu sem myndast þegar sólin fellur á jökulinn. Þar mætast haf og ís í kraftmiklu og lifandi samspili sem fangar bæði kyrrð og...
210.000 kr
Climb the mountains to see the world #1
Stærð: 50x50 cm. Tækni: Eftirprent á pappír (Museum Heritage 310 gsm). Upplag: 50 eintök. Listaverkaeftirprent af upprunarlegu verki listamanns. Gefið út í 50 tölusettum og árituðum eintökum. Ath: Selst ekki í ramma. "Verkið dregur innblástur sinn af tign og fegurð fjallanna,...
29.000 kr
The Quiet mind
Stærð: 120x120 cm. Tækni: Akrýl á striga. "Fyrir miðju verksins er hvítur kjarni, þar sem þér er boðið að horfa inn á við og kyrra hugann. Í kringum miðjuna er allt það sem við sækjum í, hugsanirnar sem við eltum,...
140.000 kr
Green winter
Stærð: 50x50 cm. Tækni: Akrýl á striga. "Stundum gerast áhrifamestu hlutirnir þegar andstæður mætast. Það snýst ekki um að annað þurfi að breyta hinu — heldur að bæði séu sjálfum sér trú og ná að fullkomna hvort annað. Andstæður þurfa...
60.000 kr
New era
Stærð: 100x100 cm. Tækni: Akrýl á striga. "Þegar þokan læðist yfir spegilslétt vötnin, hefst nýr kafli. Náttúran er kyrr en í þeirri kyrrð býr þessi kraftur. Þetta verk táknar umbreytingu og það augnablik þegar eitthvað nýtt og óskrifað tekur við. Það...
120.000 kr