Okkar markmið

Brúum bilið á milli listunnenda og listamanna

Apollo art er leiðandi stafrænt listagallerí sem hefur það einfalda markmið að brúa bilið á milli listunnenda og listamanna. Með það markmið að leiðarljósi höfum við unnið hörðum höndum að því að auðvelda listunnendum að fjárfesta í listaverkum, skapað vettvang fyrir þekkta og efnilega listamenn til að sýna verk sín og skapað samfélag þar sem listunnendur og listamenn geta tengst og stundað viðskipti.

Með þúsundir verka að velja úr, eftir yfir 130 þekkta og efnilega listamenn, er auðvelt að uppgötva verk sem hreyfir við þér. Með ókeypis heimamátun og skoðun, sem og 14 daga skilafresti er einfalt að komast að því hvort verkið sem þú ert með augastað á sé hið rétta verk fyrir þig, heimilið eða skrifstofuna.

Sagan okkar

Apollo art var stofnað í október árið 2020 af þeim Ellerti Lárussyni, framkvæmdastjóra, og Pétri Jónssyni. Hugmyndin spratt upp við leit að listaverki sem gekk brösulega og fundu þeir að hvergi var notendavænn og öruggur vettvangur til að kaupa íslenska myndlist á netinu.

Apollo art hefur náð mikilli fótfestu á íslenskum markaði á skömmum tíma og staðið undir eftirspurn með miklu og fjölbreyttu úrvali listaverka eftir þekkta og efnilega íslenska listamenn. Apollo art teymið samanstendur af metnaðarfullum einstaklingum sem hafa mismunandi bakgrunn en deila sama einlæga áhuga á að koma íslenskri list á framfæri.

Við höfum lagt grunninn að nýjum tímum í viðskiptum listaverka og munum við ótrauð halda markmiði okkar áfram á komandi tímum.

Listræn stefna

Allir listamenn sem sýna verk sín á Apollo art eru valdnir út frá reynslu, þekkingu og vinsældum. Við höfum trú á og erum stolt af öllum okkar hæfileikaríku listamönnum.

Listamenn fá góða umfjöllun um sig og sína listsköpun með persónulegri kynningarsíðu þar sem saga, ferill og afrek eru listuð upp.

Öll verk eru sett upp af vargætni þar sem vandað er til verka. Allar upplýsingar um verk eru skráðar og gæði mynda eru sett í fyrsta sæti. Verkin eru sett upp á vefnum í umhverfi til þess að stærð fari ekki á milli mála. Þannig göngum við úr skugga að verkið sé eins og búist var við, þegar það fæst afhent.

Þjónusta

We provide tailored and free advice for homes, offer a wide range of business solutions as well as help with commission artworks.

Ráðgjöf

Við aðstoðum þig við að uppgötva og fjárfesta í listaverkum sem falla að þínum stíl, rými og fjárhag.

Company solutions

Apollo art býður upp á heildarlausnir fyrir fyrirtæki á betri kjörum. Sérsniðnar lausnir, persónuleg þjónusta, reikningsviðskipti og tilboðsgerð.

Sérpantanir

Við aðstoðum þig við að koma þinni hugmynd í framkvæmd. Við tökum saman upplýsingar, finnum listamann fyrir þig og komum verkinu í sköpun.

View

Umfjallanir og viðtöl

Við notum vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum
You have successfully subscribed!
This email has been registered