Dagmar Agnarsdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík en bjó um margra ára skeið í ýmsum löndum þriðja heimsins. Hún fór að fást við myndlist fyrir alvöru eftir að hún fluttist með fjölskyldu sinni til Kuala Lumpur í Malasíu 1999. Ári síðar fluttust þau til Bangkok í Thailandi þar sem Dagmar stundaði nám með bandaríska myndlistarmanninum William Marazzi og fleirum. Síðan fluttust þau til Jakarta í Indónesíu, þar sem Dagmar stundaði nám við Listaháskólann í Jakarta (Jakarta Institute of Fine Arts) ásamt því að nema og vinna með indónesíska málaranum og myndhöggvaranum Teguh Ostenrik.
Í ársbyrjun 2006 fluttist Dagmar með fjölskyldunni til Nairobi í Kenya, þar sem hún hélt áfram að mála og sækja sér innblástur í umhverfið og nýja menningarheima, jafnframt því að leiðbeina upprennandi listamönnum í The Nairobi Arts Centre. Á öllum þessum stöðum hélt Dagmar sýningar á verkum sínum, ýmist ein eða ásamt fleirum.
Dagmar hefur einnig fengist við myndskreytingu bóka.
Nám og þjálfun
2001-2003: Einkanám hjá William Marazzi listmálara í Bangkok, einkum í meðferð olíulita ásamt ágripum af listasögu.
1999-2003: Ýmis námskeið í Malasíu og Thailandi.
2004-2005: Einkanám hjá Teguh Ostenrik, listmálara og myndhöggvara, í Jakarta, Indónesíu. Lagði þar einkum stund á módelteikningu, kol, acryl, olíu og leirlist.
2004-2005: Gestanemandi við Jakarta Institute of the Arts, þar hún lagði einkum stund á frekari þjálfun í meðferð vatnslita og blýants- og litateikningu.
2006-2007: Fjölbreytt námskeið og verkefni í The GoDown Arts Centre í Nairobi, Kenya, þ.á.m. í tréristu, módelteikningu og kola- og blekteikningu. Kenndi einnig við Nairobi Arts Centre, einkum börnum og unglingum.
2008-2009: Myndlistaskóli Kópavogs, listasaga, frjáls málun og módelteikningu.
2010-2013: Myndlistaskólinn í Reykjavík, módelteikning og módelmálun.
2016-2019: Myndlistaskóli Kópavogs, módelteikning og módelmálun.
Helstu einkasýningar
2003: Neilson Hayes Library, Bangkok, Thailand.
2006: "Six Degrees South", Koi Gallery, Jakarta, Indonesia.
2007: "Northern Lights", Southern Suns‘ RaMoMa Gallery, Nairobi, Kenya.
2010: Spáðu í mig", einkasýning, Gallerý Hornið, Reykjavík.
2013: "Fólk og flæði", einkasýning á Café Milano, Reykjavík.
2016: "Annars staðar", einkasýning á Café Milanó, Reykjavík.
2019: "Vinir & elskhugar", einkasýning í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Reykjavík.
Auk þessa hefur Dagmar tekið þátt í fjölda samsýninga heima og erlendis og sýnt olíu- og vatnslitaverk, tréristur og teikningar.
Sýna minna