Sigrún Ása Sigmarsdóttir
Aldinið hefur opnast
Stærð: 29,7x21 cm. Tækni: Akrýl, blek og teikning á pappír. "Hvert einasta aldin er með allt sem þarf til vaxtar. Sjálfbjarga kjarninn þrútnar og sprengir af sér hlífina við góð skilyrði, spírur og rótarangar þrýstast í allar áttir og í rakri moldinni...
43.000 kr
Ball í kvöld
Stærð: 50x40 cm. Tækni: Akrýl, blek og pappír á striga. "Hér er verið að leika með uppdiktuð hlutföll en innblásturinn kemur frá því að skoða gamlar tískuteikningar fatahönnuðar. Bakgrunnurinn minnir á veðraðan húsvegg sem stendur áratugum saman og það eru ýktar línur...
70.000 kr
Berfætt
Stærð: 36x30 cm.
Tækni: Akrýl, blek og pappír á striga.
"Tískuteikningar gefa hugmyndir um ýkt form mannslíkamans sem lúta eigin lögmálum. Gömul áferð á bakgrunni. Nýtt útlit manneskju. Hreyfing, kyrrstaða, sveigja og fjöðrun."
53.000 kr
Blámaber
Stærð: 37x27 cm. Tækni: Vatnslitir, akrýl og blek á kaldpressaðan 300g pappír. "Liggjandi í berjamó að virða fyrir sér smágerðan gróðurinn í þeirri nálægð, það er eins og að horfa upp í dularfullan stjörnuhimin, hlutföllin bara önnur. Náttúran býður okkur...
43.000 kr
Bláþráður
Stærð: 55x15 cm.
Tækni: Akrýl og blek á striga.
"Þráðurinn er sterkur og stefnir upp á við. Kraftmikir loftfimleikar spinnast úr handritinu sem ritaðist í fræið og ber þráðinn áfram í vinnu sinni."
55.000 kr
Blómþræðir
Stærð: 60x50 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Upplyfting með svífandi þráðum og nýju afbrigði sem sprettur úr ósýnilegum jarðvegi. Geti kvistur vaxið niður af himni þá er ef til vill blómahaf þar að finna."
68.000 kr
Bróderað að morgni
Stærð: 30x20 cm.
40x30 cm í kartoni.
Tækni: Vatnslitir, akrýl og blek á pappír.
"Eins og tvinni í bróderíi vefa þræðir sig upp og inn í kúlulagaðri tilveru sem sveigist um í morgunsólinni."
Ath: Selst ekki í ramma.
34.000 kr
Dögg fyrir sólu
Stærð: 38x28 cm.
50x40 cm í kartoni.
Tækni: Vatnslitir á pappír.
"Við sólris andar daggardrifin jörð meðan töfrar næturinnar doka við."
Ath: Selst ekki í ramma.
43.000 kr
Fjöðrun
Stærð: 50x40 cm.
Tækni: Akrýl, blek og pappír á striga.
"Innblástur þessa verks kemur frá leik með form og ýktar línur sem verða að líkama. Gömul áferð bakgrunnsins, nýtt útlit manneskju, hreyfing, sveigja og fjöðrun."
70.000 kr
Flýtur í mjólk og hunangi
Stærð: 33x22 cm. 41x31 cm í kartoni. Tækni: Vatnslitir, akrýl og blek á pappír. "Gnægtaborðið vex með hverjum degi vorsins. Að fylgjast með hvernig plöntur verða bústnar, kraumandi af lífi, er innblástur þessa verks. Ávextir og ber, mjólk og hunang...
41.000 kr
Franskir hnútar
Stærð: 30x20 cm. 40x30 cm í kartoni. Tækni: Akrýl, blek og vatnslitir á vatnslitapappír. Bródering og frjáls útsaumur sem listakonan stundar inniheldur gjarnan svokallaða franska hnúta. "Hér fara þræðirnir á flug og þeir gætu verið að breytast í blóm eða tré, fagna...
43.000 kr
Frjókorn
Stærð: 37x27 cm. Tækni: Vatnslitir, akrýl og blek á kaldpressaðan 300g pappír. "Aldin, fræ, egg og loftbólur eru upphaf og endir, verða til og fljóta, fljúga, svífa, bíða. Móðir náttúra skapar þetta bíó fyrir okkur og hér varð til verk...
43.000 kr
Golan sunnan að
Stærð: 30x42 cm. 39x51 cm í kartoni. Tækni: Akrýl og blek á 300g vatnslitapappír. "Innblástur þessa verks kemur frá hversdagslegri útiveru í blárri birtu og tilfinningu sem verður til á einu andartaki. Sunnangola líður yfir andlitið og augun leggjast ósjálfrátt aftur um...
57.000 kr
Gos í gróandanum
Stærð: 36x28 cm. 50x40 cm í kartoni. Tækni: Vatnslitir á pappír. "Sprengikraftur í frjósemi náttúrunnar er oft hulinn. Fræ geta skotist langar leiðir þegar hýði þeirra springur, önnur losa sig varlega og ferðast um með því að svífa í loftinu...
43.000 kr
Græðijurtir
Stærð: 30x30 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Vermireit þarf engan fyrir græðijurtir sem skjóta rótum og bjóða sig fram til góðra verka. Sjálfala villijurtir, hógværð og nytsemi."
43.000 kr
Hátíðaskref
Stærð: 30x22 cm. 40x30 cm í kartoni. Tækni: Akrýl, vatnslitir, pastel og blek á vatnslitapappír. "Myndin túlkar tilfinninguna við hátíðleg skref sem tekin eru við ýmis tækifæri. Manneskjur vanda sig og stíga varlega til jarðar hvort sem verið er að gera framandi...
43.000 kr
Himnabárur
Stærð: 60x50 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Himnabárur vagga. Bólstar svífa um bláfaðminn sem andar loftbólum við dýptarmælingar skýjanna."
68.000 kr
Himnalengja
Stærð: 60x50 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Uppávið þræðist lengjan og bregður fyrir sig kvikandi blæju, svo blá að hún sýnist græn. Endalaus fyrirheit."
68.000 kr
Himnaliljur
Stærð: 60x60 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Himnaliljur hljóta að vaxa á norðurhveli, við birtu norðurljósa og stjarna, skrautjurtir sem ekki bera græn blöð heldur springa út eins og safaríkir flugeldar með langvarandi blossa."
70.000 kr
Himnasæla
Stærð: 60x50 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Blómkollar, blikuhnoðrar, fiður, skýjaköfun, allt má birtast í hugsunum sem líða um óheftar. Sæla svífur í augnablik."
68.000 kr
Hindber
Stærð: 31x21 cm. Tækni: Vatnslitir, akrýl og blek á kaldpressaðan pappír. Verkið er málað undir áhrifum af bragði hindberja sem í huga listamannsins eru ímynd munaðar og vellystinga. Hér er gnægð safaríkra berja, rauðra og sætra. Ath: Selst ekki í...
39.000 kr
Í grænni lautu
Stærð: 40x30 cm. 50x40 cm í kartoni. Tækni: Akrýl og blek á 300g heitpressaðan vatnslitapappír. "Birta er innblástur þessa verks. Að fylgjast með hvernig gróðurinn verður bústinn á vorin, kraumandi af lífi og teygir sig í átt til sólar er magnað. Fræ...
55.000 kr
Inni í skógarskjóli
Stærð: 29x21 cm. 40x30 cm í kartoni. Tækni: Vatnslitir, akrýl og blek á pappír. "Oft er skjól í skógarbotni og þar er næðingur minnstur. Stórar plöntur halda verndarvæng yfir öllu því smáa sem leynist við fætur okkar." Ath: Selst ekki...
31.000 kr
Plöntusvif
Stærð: 25x25 cm. Tækni: Akrýl, vatnslitir, blek og pastel á 300g vatnslitapappír. "Myndir af undrum náttúrunnar og frásagnir af því hversu mikið er ókannað enn, gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Er verið að horfa ofan í dýjalind, upp í krónu birkitrés eða ofan...
35.000 kr