Jökulbjarmi
Stærð: 120x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Jökulbjarmi er abstrakt verk sem er innblásið af þeirri stórfenglegu birtu sem myndast þegar sólin fellur á jökulinn. Þar mætast haf og ís í kraftmiklu og lifandi samspili sem fangar bæði kyrrð og hreyfingu náttúrunnar. Grófleikinn minnir á síbreytilegt yfirborð jökulsins sem teygir sig í allar áttir og endurspeglar stöðuga umbreytingu og styrk."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Snædís Högnadóttir
Snædís Högnadóttir eða SOGNA er fædd í Vestmannaeyjum en uppalin í Kópavogi. Hún kemur af listamannafjölskyldu og hefur listin alltaf verið í henni. Sem barn teiknaði hún mikið, málaði, skrifaði ljóð og sögur og hannaði föt. Þegar sköpunarhæfileikum er ekki sinnt mun þörfin alltaf brjótast fram á einhverjum tímapunkti í lífi listamannsins og hefur Snædís farið aftur í að rækta sköpunarhæfileikana.
Snædís sækir innblástur úr litum og fegurð náttúrunnar, úr fjöllunum, lífsreynslunni og tilfinningum. Náttúran er stórkostlega mögnuð og vill hún skapa verk sem hver og einn getur tengt við á sinn hátt. . . Lesa meira
