Þokutindar
Stærð: 100x100 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Verkið Þokutindar vísar til þess þegar framtíðin er hulin þoku. Tímabil þar sem svörin eru ekki skýr og leiðin fram á við krefst trausts. Í þessari óvissu felst þó ákveðin kyrrð, í henni finnur þú rými til að hlusta á innsæið og leyfa hlutunum að þróast án þess að knýja fram niðurstöðu. Hver tindur rís úr þokunni eins og áminning um að skýrleikinn birtist smám saman. Þokutindar tákna ferlið að halda áfram þrátt fyrir óvissuna, að treysta því að næsta skref gefi skýrari mynd. Þeir minna á að það er ekki alltaf nauðsynlegt að sjá lokaútkomuna heldur njóta fegurðarinnar í því óljósa."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Snædís Högnadóttir
Snædís Högnadóttir eða SOGNA er fædd í Vestmannaeyjum en uppalin í Kópavogi. Hún kemur af listamannafjölskyldu og hefur listin alltaf verið í henni. Sem barn teiknaði hún mikið, málaði, skrifaði ljóð og sögur og hannaði föt. Þegar sköpunarhæfileikum er ekki sinnt mun þörfin alltaf brjótast fram á einhverjum tímapunkti í lífi listamannsins og hefur Snædís farið aftur í að rækta sköpunarhæfileikana.
Snædís sækir innblástur úr litum og fegurð náttúrunnar, úr fjöllunum, lífsreynslunni og tilfinningum. Náttúran er stórkostlega mögnuð og vill hún skapa verk sem hver og einn getur tengt við á sinn hátt. . . Lesa meira
