Kristín Ragnarsdóttir hefur teiknað mikið allt sitt líf og hefur farið á margskonar námskeið í myndlist, í alhliða teikningu, módelteikningu, vatnslitamálun og olíumálun, bæði hjá myndlistarmönnum og í gegnum Myndlistarskóla Reykjavíkur. Sem og stundað nám í Myndlistar- og handíðaskóla Íslands, Myndlistarskóla Akureyrar og stundar nú myndlistarnám frá Milan Art Institute, Flórída.
Í myndlistinni leggur Kristín áherslu á að fanga augnablik hversdagsins og samspil, og leitast við að skapa fegurðina í öllu í myndverkum sínum, hvort sem það er landslag, náttúran, umhverfið og manneskjan. Tæknin sem Kristín notar er bæði með vatnslitum, akrýl og olíu eða ýmiskonar blandaðri tækni og klippimyndum.
. . .
Lesa meira

Nám:
Fornám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1997-1998.
Árs nám í fagurfræðideild frá Myndlistarskóla Akureyrar 2024-2025.
Stundar nú fjarnám í myndlist (Mastery Program) frá Milan Art Institute í Flórída, frá sumrinu 2025.
Samsýningar:
Litbrigði samfélags, árviss sýning listafólks í Myndlistarfélaginu Sólon á Sauðárkróki, árin 2011-2023.
Í Listakoti Dóru, í Vatnsdalshólunum, árin 2021 og 2022.
Sýning í Deiglunni Akureyri, með nemendum frá Myndlistarskóla Akureyrar, sem sýndu afrakstur vinnu sinnar úr skólanum veturinn 2024-2025, haldinn vorið 2025.
Einkasýningar:
Myndlistarsýningin Sýn, sem var styrkt af KS og SSNV, haldin í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga árið 2019.
Örsýning í húsnæði RH endurskoðun á Sauðárkróki árið 2026.

Sýna minna