VÆNGJAHLJÓMUR
Stærð: 80x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Í hreyfingunni breytist ljósið og VÆNGJAHLJÓMUR verður að ferðalagi lífsins, lifandi takti. Við leggjum upp með von í hjarta og leyfum þytinum að móta leiðina um ókunn lönd. Í þeirri vegferð mætast óvissa og von, mótbyr og meðbyr en ávallt er þar einhver innri rödd sem vísar leið. Að leggja af stað er hugrekki, að halda áfram er staðfesta, og í sjálfri hreyfingunni finnum við friðinn og sáttina sem gera ferðalagið merkingarbært. Það er að lifa."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.