Minnisvarðar augnabliksins
Stærð: 50x40 cm.
Tækni: Olía á striga.
Málað 2022.
Minnisvarðar augnabliksins / Monuments of the Moment, sýnir landslag sem líður frá áhorfandanum í grænu hólóttu landslagi sem fyrnist í grábrúna hóla og fjöll. Mildur himinn vakir yfir stemmingunni, hlýleiki, ró. Í hólum landsins stingast upp hvítar þríhyrndar keilur í að virðist engri sérstakri röð, í engu sérstöku kerfi. Og yfir öllu þessu og á miðjum himni vakir grænn hringur. "Þetta verk hefur nokkrar hliðar. Ég hef nefnilega verið að vinna um nokkurt skeið með grunnformin í samhengi við landslag sem er á mörkum þess að vera afstætt og detta inn í heim fantasíunnar. Mér er hugleikin þessi landamæri hvenær mynd verður náttúra og hvenær bara hugarburður. Þetta er að mínu viti einhvers konar staður. Súrrealistarnir gerðu okkur þetta ljóst. Sjálf myndin ber draumkennt yfirbragð súrrealismans, en er svo líka pínu sjónrænn leikur milli tveggja grunnforma, hrings og þríhyrnings”, segir Birgir Rafn.
“En svo var önnur meining líka. Fyrir mig virkar græni hringurinn hér sem vitund, sem bæði orsök og afleiðing aðstæðnanna og veitir allri senunni vissa von. Sko, það sem vakti nefnilega líka fyrir mér var sú hugsun að einstaklingurinn lifir ekki nema 80-100 ár. Og hvað er það miðað við alheiminn? Það er hrikalega stutt og samt bisum við við að reisa okkur og öðrum alls konar minnisvarða. Menn eru í því óþreytandi. Heilu samfélögin reisa sína varða, líkt og vörður á heiðum úti, svo fólk villist ekki af leið í lífsþokunni og allir séu uppteknir, taka þátt, fara eftir reglunum, ekki ólíkt Sisyphus. Og þar sem ég hef mjög gaman að rýna í orð og tengja saman allskonar merkingar, þá virðist varða á heiði vera náskyld mannlegum vörðum, dyravörðum, siðgæðisvörðum, lögregluvörðum osfrv. Þannig að verkið fór þá að taka þá beygju að fjalla um streð manna í gegnum söguna. Og mér finnst ég hafa sett fram vongóða sýn á það. Amk er mildi yfir senunni. Einhver smá von og smá húmor er þarna líka. Enda minnisvarðar yfirleitt ekki reistir augnablikinu", segir Birgir Rafn.
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Birgir Rafn Friðriksson
Birgir Rafn Friðriksson - B R F, fæddur í júlí 1973, er uppalinn Eyfirðingur, nánar tiltekið á Akureyri. Myndlistarmenntun hóf hann formlega úti í Suður Frakklandi 1995, þar sem hann segist hafa fengið ”bakteríuna”. Hann snéri því fljótt aftur heim til Akureyrar þar sem hann sótti mörg kvöldnámskeið Myndlistarskólans á Akureyri. Birgir Rafn skráði sig svo í dagnám við skólann og útskrifaðist frá málunardeildinni árið 2001 eftir fjögurra ára nám. Á meðan náminu stóð vann hann m.a. fyrir sér sem myndskreytir á auglýsingastofu og kenndi á myndlistanámskeiðum. Árið 1999 hlaut hann styrk til hálfs. . . Lesa meira