KYRRÐARÞEYR
Stærð: 100x160 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"KYRRÐARÞEYR er andblærinn sem fylgir algjöru næði, þegar himinn og haf mætast í hugarró. Í fjarskanum býr ljósið, sannfæring um að allt sé eins og það á að vera. Andartakið þegar náttúran sjálf dregur andann djúpt og kyrrðin verður að nærveru og ljósi hins æðra sem býr í hjartanu."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.