HJARTAHLÝJA
Stærð: 100x160 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"HJARTAHLÝJA býr í mjúku ljósi sem fellur yfir daginn, í kyrrðinni sem umvefur sálina og í augnablikum þar sem tíminn hægir á sér. HJARTAHLÝJA er nærvera án orða, vinur sem situr með þér í þögn. Hún er hvíld fyrir hjartað, mild hönd sem heldur þegar lífið reynir á. Í henni býr vonin, hljóðlát en sterk, sem minnir okkur á að við erum aldrei ein. Og jafnvel þegar fjarskinn teygir sig milli augnablika, ástar, söknuðar og minninga, þá lifir hlýjan áfram, sem ljós sem slokknar ekki.
Verkið er innblásið af Vestfjörðum."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.