FRIÐARSKYN
Stærð: 40x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Snæfellsjökull hvílir í faðmi víðáttunnar, þar sem birta og kyrrð fléttast saman. Tign hans og tímalaus fegurð vekja þá djúpu friðsæld sem aðeins náttúran kann að miðla. Þar þagnar kliður heimsins og sálin finnur frið og ró."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.