ESJULJÓS
Stærð: 40x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Esjan fylgir okkur frá birtu sumarsins inn í kyrrð vetrarins og minnir á fegurðina í því sem stendur fast meðan lífið hreyfist áfram. Ljósið og myrkrið umvefur hlíðar hennar og breytir svipnum, en nærveran er alltaf sú sama í gegnum allar árstíðir eins og traustur vinur sem er alltaf til staðar."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.