DIRFSKA
Stærð: 80x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"DIRFSKA er hugrekki og innri kraftur sem færir styrk til að yfirstíga ótta og áskoranir. Hún kallar fram þor til að klífa brattan, óháð því hversu erfitt það kann að vera. DIRFSKA leyfir okkur að fylgja hjartanu, horfa fram á við með seiglu og þrautseigju í hverju skrefi og halda áfram, sama hversu brött eða torfær leiðin kann að vera."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.