ÆGISLJÓS
Stærð: 100x100 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Ægisljós er birta hins ósýnilega, hljóðlát áminning um að fegurðin býr ekki aðeins í kyrrðinni, heldur einnig í öldunum sem brotna, í því sem hverfur og því sem fæðist á ný. Því líkt og hafið berum við í okkur bæði djúpið og ljósið. Og jafnvel þegar myrkrið virðist óendanlegt, heldur ljósið áfram að dansa á ölduföldunum."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.