ÁRLJÓMI
Stærð: 90x90 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Verkið ÁRLJÓMI fangar augnablikið þegar nóttin breytist í nýjan dag og fyrstu sólargeislarnir birtast í gegnum dalalæðu morgunsins. Kyrrð og ró sumarnæturinnar víkur fyrir nýjum ævintýrum í náttúrunni og hvetur okkur til að halda áfram veginn og bjóða nýjum degi faðminn með öllu því óvænta sem lífið kann að færa."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.

Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.