Tína Jezorski
Tína Jezorski
Kristín Guðbrandsdóttir Jezorski, eða Tína Jezorski, er fædd í Reykjavík 1974. Hún er þriggja barna móðir og býr í náttúrunni í Kjós. Tína útskrifaðist sem gullsmiður frá Þýskalandi fyrir 30 árum. Hún hefur alltaf unnið að myndlist samhliða gullsmíðinni. Síðustu 5 árin hefur myndlistin tekið meira pláss.
Tína hefur gaman af að vinna verkin í dýpt / upphleyptri áferð ýmist með akrýl og olíu. Hún notar einnig 24 karata gull, silfur og kopar í verkin sín. Oft notar hún líka hraun, steina og það sem hugurinn og sálin girnast hverju sinni. Tína vinnur einnig sem Ayurveda nuddari og Reiki heilari og kemur innblásturinn í verkin hennar mikið úr andlega heiminum og úr orku jarðar og náttúrunni.
Án titils 4
Stærð: 75x75 cm.
Tækni: Olía, akrýl, sprey, gifs og 24 karata gull á striga.
Listamaður notar 24 karata gull í verkið.
520.000 kr
Án titils 3
Stærð: 75x75 cm.
Tækni: Olía, akrýl, sprey, gifs, náttúrusteinn, silfur og 24 karata gull á striga.
Listamaður notar íslenskan náttúrustein, silfur og 24 karata gull í verkið.
480.000 kr
Án titils 2
Stærð: 60x60 cm.
Tækni: Olía, akrýl, sprey, gifs, naglar og 24 karata gull á striga.
Listamaður notar 24 karata gull í verkið.
460.000 kr
Án titils 1
Stærð: 40x40 cm.
Tækni: Olía, akrýl, sprey, sparsl og 24 karata gull á striga.
Listamaður notar 24 karata gull í verkið.
380.000 kr
Close
Your Cart
Your cart is currently empty.