Tína Jezorski
Tína Jezorski
Kristín Guðbrandsdóttir Jezorski, eða Tína Jezorski, er fædd í Reykjavík 1974. Hún er þriggja barna móðir og býr í náttúrunni í Kjós. Tína útskrifaðist sem gullsmiður frá Þýskalandi fyrir 30 árum. Hún hefur alltaf unnið að myndlist samhliða gullsmíðinni. Síðustu 5 árin hefur myndlistin tekið meira pláss.
Tína hefur gaman af að vinna verkin í dýpt / upphleyptri áferð ýmist með akrýl og olíu. Hún notar einnig 24 karata gull, silfur og kopar í verkin sín. Oft notar hún líka hraun, steina og það sem hugurinn og sálin girnast hverju sinni. Tína vinnur einnig sem Ayurveda nuddari og Reiki heilari og kemur innblásturinn í verkin hennar mikið úr andlega heiminum og úr orku jarðar og náttúrunni.
Því miður eru engin verk í þessum flokk. Vinsamlegast breyttu leitarskilyrðum.
Karfan þín
Karfan þín er tóm.