Sigrún Halla
Sigrún Halla
Sigrún Halla (f. 1979) er þverfaglegur listamaður og textílhönnuður sem vinnur með fjölbreytt efni og aðferðir. Forvitni, leikur og tilraunakennd nálgun við hefðbundna tækni og miðla einkennir vinnuferlið. Abstrakt verk hennar dansa oft á jaðrinum hvað skilgreiningar varðar með lauslegum skírskotunum til hlutveruleikans, á meðan efniskennd og sýnileiki handverksins myndar tengingar við sögu og samfélag.
Sigrún Halla útskrifaðist úr Listfræði frá Háskóla Íslands árið 2011 og úr Textíldeild Myndlistaskólans í Reykjavík árið 2014. Hún er meðlimur í Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM) og Textílfélaginu og hefur verið virk í sýningahaldi undanfarin ár. Hún hefur starfað við stafræna hönnun, textílhönnun, leikmunagerð og sýningastjórn samhliða myndlistinni.
Your Cart
Your cart is currently empty.