Ball í kvöld
Stærð: 50x40 cm.
Tækni: Akrýl, blek og pappír á striga.
"Hér er verið að leika með uppdiktuð hlutföll en innblásturinn kemur frá því að skoða gamlar tískuteikningar fatahönnuðar. Bakgrunnurinn minnir á veðraðan húsvegg sem stendur áratugum saman og það eru ýktar línur líkama sem gefa sveigjur, beygjur, hreyfingu og mýkt."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Sigrún Ása Sigmarsdóttir
Sigrún Ása Sigmarsdóttir (1957) nýtur þess að fara í Grasagarðinn, ferðast um heiminn, sauma út og sauma í vél, gera við hluti, elska fólkið sitt, eiga samræður og læra alls konar nýtt. Hún er í hjarta sínu barnabókavörður, enda mikilvægasta vinnan á starfsferlinum, rak eitt sinn heildverslun og var upplýsingafræðingur hjá Mbl og Rúv. Er líka Zentangle/flæðiflúr/teiknidútl leiðbeinandi.
Myndlistarferillinn hóf að blómstra við 63 ára aldurinn en Sigrún hefur sótt námskeið hjá nokkrum kennurum. Rauði þráðurinn í verkunum er náttúruleg form. Þar er sterk vísun í lífrænan plöntuheim, hið smágerða og fínlega er kallað fram með notkun sterkra lita og. . . Lesa meira