Eldprent 3/10
Stærð: 50x35 cm.
54x44 cm í kartoni og svörtum ramma.
Tækni: Gum bichromate á bómullarpappír.
"Eldprent var mitt framlag til farandsýningarinnar Solander 250: Bréf frá Íslandi sem var sett upp til að minnast þess að 250 ár eru liðin frá merkum erlendum vísindaleiðangri til Íslands árið 1772. Sýningunni lauk í Svíþjóð árið 2025 og eintak af verkinu er í safneign Piteå Kunsthall í Svíþjóð. Verkið var prentað í 10 eintaka upplagi og var unnið í sögulegri gúmmí bíkrómat-aðferð (e. Gum bichromate) þar sem notaðir eru vatnslitir blandaðir ljósnæmri lausn. Hvert eintak í seríunni hefur einstaka eiginleika.
Myndin sýnir gosið í Geldingadölum árið 2021, sem ég ljósmyndaði á filmu til að gefa henni tímalaust yfirbragð. Ysta lagið sýnir rithönd séra Jóns Steingrímssonar úr Eldritinu sem er prentuð með eldfjallaösku til áminningar um að kraftur náttúrunnar er okkur ekki aðeins til ánægju."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Laura Valentino
Myndlistarkonan Laura Valentino fæddist í Bandaríkjunum árið 1955 og hefur verið búsett í Reykjavík síðan 1988. Hún hlaut meistaragráðu í myndlist frá Kaliforníuháskóla í Berkeley og vinnur í dag með gamla ljósmyndatækni, listgrafík, pastelmálun og heitt vax tækni (encaustic).
Laura sækir innblástur sinn í kraft og viðkvæmni náttúrulegs og borgaralegs umhverfis síns, og hún leitast við að finna hið óvenjulega í hversdagslegum hlutum. Hún færir sig á milli ýmissa miðla og ferla með einkennandi strokutækni og grafískum stíl sem á rætur sínar að rekja til málaralistarinnar.
Verk Lauru hafa verið sýnd víða, bæði innanlands og utan og hún hefur haldið. . . Lesa meira
