The Incredible Machine
Stærð: 40x40 cm (myndflötur 32x32 cm).
40x40 cm með hvítum kanti í svörtum ramma.
Tækni: Eftirprent á 300 gr bómullarpappír.
Upplag: 25 eintök.
Listaverkaeftirprent af upprunarlegu verki listamanns sem er selt. Gefið út í 25 tölusettum og árituðum eintökum.
The Incredible Machine varð til hægt og rólega á nokkrum vikum í aðdraganda og yfir hátíðarnar 2021-2022. Við verkið var dundað í heilmikilli hugarró undir áhrifum og innblæstri frá Wassily Kandinsky.
Þess má til gamans geta að fólk sér ýmislegt í þessu verki. Það virðist kveikja í ímyndunaraflinu og hefur fólk haft orð á því að þarna sjái það pendúl, töfrasprota, víkingaskip, eldflaug, risakross, gleði, tónlist, nótur og himingeim. Fimm ára gutti sagði þarna vera geimskip sem aldrei lendir!
Listamaðurinn hefur á undanförnum misserum orðið fyrir gríðarlegum innblæstri og áhrifum af listsköpun Kandinsky, þá einna helst hans seinni tíma verkum. Kandinsky er oft kallaður faðir abstakt listarinnar. Hann sá tónlist í litum og liti í tónum. Hann tengdi líka ákveðna liti við ákveðin form.
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Andrea Ólafs
Andrea er fædd og uppalin á Húsavík en hefur frá unga aldri búið og ferðast víða um heiminn. Hún býr núna í Suðurhlíðum Kópavogs þar sem hún hefur komið sér upp lítilli listasmiðju og leyfir þar sköpunargleðinni að fá útrás.
Andrea dundaði sér mikið við að teikna þegar hún var barn og unglingur, en lagði svo listsköpun alfarið á hilluna þar til hún var vakin af listagyðjunni sjálfri í gegnum draumfarir. Þannig vaknaði skaparinn til vinnu. Sköpunarflæðið er eins og mis-straumhörð á og fer í ýmsar áttir, en sterkir litir, geometrísk form ásamt einstaka tilvísunum í forn fræði og. . . Lesa meira