Markarleysi
Stærð: 70x70 cm.
Tækni: Olía á striga.
"Verkið Markarleysi kemur úr seríunni Mörk/innan marka þar sem unnið var með ólíkar nálganir á orðinu mörk.
Samkvæmt orðabók geta Mörk þýtt þrennt, mælieining fyrir þyngd/250 grömm, skógur/opið svæði á landi, víðavangur, bersvæði eða það sem greinir eitthvað tvennt í sundur.
Einnig má skoða mismunandi fallbeygingar og tengiorð markar sem má mynda allt aðra merkingu. Er þá ekki einungis hið bókstafleg merking orðsins í forgrunni heldur er það orðaleikurinn. Orðaleikurinn gefur okkur kleift að leika okkur með tungumálið sem er akkúrat sem gerir íslenskuna svona áhugaverða. Er þá hægt að vinna með orðið til hins óendanlega.
Í verkinu Markarleysi er fjallað um þau mörk sem fólk setur og þá óvirðingu þeirra sem virða þær ekki."
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Fríða Katrín Bessadóttir
Fríða Katrín (1998) fædd og uppalin í Reykjavík, útskrifaðist úr Myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Hefur hún starfað sem myndlistarkennari við Myndlistarskóla Kópavogs ásamt því að vera partur af KANNSKI gallery sem samfélagsmiðlastjóri.
Í listinni hefur hún lagt áherslu á gjörninga og tengsl þeirra við sviðslist. Verkin hafa þá fjallað um samspil raunveruleikans og skáldskapar, þá úr persónulegum raunheimi listamanns og annarra í kringum hana sem hún svo setur í aðra mynd til þess að blekkja áhorfendur eða fá þá til þess að fylla í eyðurnar. Hún hefur ekki einungis dvalið í gjörðinni heldur hefur hún unnið með ólíka. . . Lesa meira