Hauskúpa 1
Stærð: 61x61 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Nýtt upphaf innan nýrrar seríu, Úmbra Illuminati, en „Hvítt á hvítu“ hefur þegar valdið straumhvörfum þar sem hrein og fáguð uppsetning tekur umsvifamiklum breytingum er dagsljós dvín og myrkur vekur myndina til lífs með innbyggðri LED lýsingu og tilheyrandi breytingum. Myndin er jafn einstök og allt það sem tekur við, en hægt er að njóta listaverksins án enda þar sem myndin er sjaldan söm og breytist sífellt eftir skilyrðum og áreiti eftir valmöguleikum.
Tekið úr Latínu, en „Úmbra Illuminati“ má þýða sem „skugga hins upplýsta“ þar sem verkið er gagnvirkt og getur tekið breytingum eftir hljóðum og áreiti áhorfanda og/eða umhverfis samkvæmt stillingum og valkostum. Myndformið er grafískt og tiltölulega einfalt við fyrstu sýn, en smáatriðin koma fram þegar nær er litið og/eða þegar skyggja tekur. Fjarstýring fylgir með og er hægt að stilla LED lýsinguna eftir hentugheitum og velja mismunandi liti og/eða síbreytileg litróf, þ.m.t. gagnvirkt. Snúruna má fjarlægja og njóta verksins án lýsingar."
Ath: Verkið er staðsett erlendis (Bandaríkjunum) og tekur 4-8 vikur að koma til landsins.
Pökkunar- og flutningskostnaður er innifalinn í verði.
Upplag
Lesa meira.
14-day right of return
Lesa meira.
Purchase process and delivery
Lesa meira.
Home delivery or pick up
Lesa meira.
Diðrik Jón Kristófersson (Nekron Art)
Diðrik Jón Kristófersson er fæddur og uppalinn í Reykjavík og byrjaði snemma að teikna og mála, en hans helstu áhrif og áhrifavaldar komu – og koma enn – úr goðafræði, þjóðsögum og fornsögum (íslenskum og erlendum), dulspeki/heimspeki, tónlist og tengdri myndlist ásamt óhefðbundnum teiknimyndasögum og klassískri myndlist endurreisnar.
Að lokinni BA gráðu í myndlist við Willem de Kooning Akademíuna í Hollandi, ásamt Meistaragráðu í Kennslufræðum Sjónlista við LHÍ, hefur Diðrik starfað sem myndlistarmaður í næstum 30 ár og haldið einkasýningar á Íslandi og í Hollandi ásamt þátttöku í fjölda samsýninga. Hann er nú búsettur í Norður-Karólínufylki. . . Lesa meira
