
Vilborg G. Hansen (Villa Gunn)
Vilborg G. Hansen (Villa Gunn)
Vilborg G. Hansen, eða Villa Gunn, er frá Reykjavík og hefur búið á höfuðborgarsvæðinu mest alla sína ævi utan nokkurra ára á Selfossi. Hún hefur alltaf leitað í listina frá unga aldri hvort sem það var að mála, teikna eða önnur listform.
Vilborg notast við akrýl og lætur flæða. Hún málar abstrakt og expressjónísk málverk sem eiga það til að ögra. Hún notar lítið sem ekkert pensla en í staðinn beitir hún ýmsum áhöldum, svömpum og vatni, sem leikur stóra rullu í hennar verkum. Vilborg hefur tekið ýmis námskeið, m.a. hjá margverðlaunuðum alþjóðlegum listamönnum eins og Gino Savarino og Surej Patel. Á árunum 2024 og 2025 hefur Vilborg hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín.
Close
Your Cart
Your cart is currently empty.