Kristjana Rúna Kristjánsdóttir (Jana Art) er fædd á Íslandi árið 1983 í Reykjavík. Hún ólst upp hjá listrænum foreldrum, móðir var menntuð sem Leirlistakona og faðir spilaði á gítar. Áhrif frá verkum móður sinnar smituðust yfir á hana og mjög ung byrjaði hún að mála leir og fleira, nota akrýlmálningu og pensla með móður sinni. Þekking móðurinnar var góður grunnur að framtíðarstarfi Kristjönu í listum.
Hún lærði klassískan söng í Skövde, Svíþjóð frá 1993 til 1998 í skólanum Eric Uggla. Síðar söng hún í brúðkaupum, gekk til liðs við hljómsveit, samdi lög og texta, gaf út lagið -ROLLER COASTER- Jana. . . Lesa meira
Kristjana Rúna Kristjánsdóttir (Jana Art) er fædd á Íslandi árið 1983 í Reykjavík. Hún ólst upp hjá listrænum foreldrum, móðir var menntuð sem Leirlistakona og faðir spilaði á gítar. Áhrif frá verkum móður sinnar smituðust yfir á hana og mjög ung byrjaði hún að mála leir og fleira, nota akrýlmálningu og pensla með móður sinni. Þekking móðurinnar var góður grunnur að framtíðarstarfi Kristjönu í listum.
Hún lærði klassískan söng í Skövde, Svíþjóð frá 1993 til 1998 í skólanum Eric Uggla. Síðar söng hún í brúðkaupum, gekk til liðs við hljómsveit, samdi lög og texta, gaf út lagið -ROLLER COASTER- Jana Kristjáns tld. og síðar fékk hún hlutverkið Columbia í söngleiknum "Rocky Horror Picture Show" árið 2023.
Árið 2019 fór hún að helga sig að því að læra allt um akrýlmálningu og Íblöndunarefni, fljótandi list vakti athygli hennar og þaðan var ekki aftur snúið. Hún gekk til liðs við lista-og menningarfélag Vestmannaeyja, leigði vinnustofu með 32 öðrum listamönnum í Hvíta Húsinu og tók þátt í mörgum listsýningum.
Ást hennar á náttúrunni skín í nýjustu verkum hennar. Hún notar bæði akrýl og olíumálningu. Henni finnst mikill máttur í litum og málar hún að mestu með innsæinu sínu, hvaða litir kalla á hana hverju sinni og er oftast ekki með plan þegar hún byrjar á nýjum striga. Tjáning sálarinnar flæðir á meðan hún málar.
Samsýningar:
2021 Lífið Í Lit - Skúmaskot
2021 Bland Í Poka- Café Milanó, samsýning
2021 Sköpun- Hvítahúsið, samsýning
2021 Haustvindar Úr Suðri- Art 67 Gallerí
2021 Ljóðræn List Að Vetri- Hvítahúsið
2022 Hótel Vestmannaeyjar
2022 Í Allar Áttir- Hvítahúsið
2025 Listasafn Mosfellsbæjar

Sýna minna