Guðrún Ósk Stefánsdóttir
Guðrún Ósk Stefánsdóttir
Guðrún Ósk Stefánsdóttir fæddist í Hafnarfirði árið 1965 og bjó þar fram til níu ára aldurs. Þá flutti hún til Akureyrar, þar sem hún hefur búið síðan, að undanskildum þremur árum sem hún dvaldi í Svíþjóð. Guðrún hefur frá unga aldri haft mikinn áhuga á myndlist og sótt fjölmörg námskeið á því sviði. Hún stundaði myndlistarnám við Myndlistaskólann á Akureyri og tók einnig tveggja ára nám hjá fjöllistamanninum Erni Inga.
Á ferlinum hefur hún unnið með ýmis efni, þar á meðal vatnsliti og pastelkrítar, en á undanförnum árum hefur hún einkum notað olíu- og akrýlmálningu, auk penna. Listaverk hennar eru ýmist fígúratíf eða landslagsverk. Guðrún er félagi í Gilfélaginu. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum á vegum Myndlistaskólans á Akureyri og hefur einnig þrívegis sýnt verk sín á sýningunni "Salon des Refusés" í Deiglunni á Akureyri.
Your Cart
Your cart is currently empty.