Erna Hafnes
Erna Hafnes
Erna Hafnes er myndlistarmaður frá Akranesi sem vinnur fyrst og fremst með olíu á striga. Verk hennar sækja innblástur í náttúruna, lífræn form og síbreytilegt innra landslag tilfinninga. Í málverkunum mætast flæði, áferð, litir og form í leit að jafnvægi milli kyrrðar og hreyfingar.
Nýjasta serían, Innra veður, byggir á þeirri hugmynd að tilfinningar séu á stöðugri hreyfingu, líkt og veðrið sjálft. Upphafspunktur verkanna eru þrýstilínur veðurkorta sem umbreytast í lífræn form þar sem lög, litir og áferð þróast á eigin forsendum. Verkin eru unnin án fyrirfram ákveðinnar niðurstöðu og hvert þeirra verður þannig sjónræn skráning augnabliks – innra veðurs. . . Lesa meira