Charlotta Sverrisdóttir
Charlotta Sverrisdóttir
Charlotta Sverrisdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík. Árið 1998 fór hún að læra málun (fine art) í Long Beach City College í Californíu. Litirnir og blómin þar heilluðu Charlottu mikið og dregur hún innblástur þaðan.
Hennar þema er því blóm, eða “My beautiful flowers” eins og hún kallar það. Þegar heim var komið hélt hún áfram í námi í Myndlistarskóla Kópavogs ásamt því að taka fjöldann allan af námskeiðum. Hún er ein af meðstofnendum Grósku.
Hún hefur tekið þátt í flestum sýningum á vegum Grósku ásamt því að halda einkasýningar. Hún varð heilluð af olíunni og hefur aðallega notað hana í verkum sínum en hefur þó nýlega farið yfir í akrýl liti.

Close
Your Cart
Your cart is currently empty.