The Quiet mind
Stærð: 120x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Fyrir miðju verksins er hvítur kjarni, þar sem þér er boðið að horfa inn á við og kyrra hugann. Í kringum miðjuna er allt það sem við sækjum í, hugsanirnar sem við eltum, óttann sem við nærum, þær langanir sem við gefum eftir. Þetta er fagurt en stundum þungbært. Kjarninn minnir þig á þessa stund akkúrat núna, minnir þig á að draga andann djúpt og staldra við og ná tökum á huganum. Verkið biður þig um eitt, hlustaðu á hugann, heyrir þú þögnina?"
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.

Snædís Högnadóttir
Snædís Högnadóttir eða SOGNA er fædd í Vestmannaeyjum en uppalin í Kópavogi. Hún kemur af listamannafjölskyldu og hefur listin alltaf verið í henni. Sem barn teiknaði hún mikið, málaði, skrifaði ljóð og sögur og hannaði föt. Þegar sköpunarhæfileikum er ekki sinnt mun þörfin alltaf brjótast fram á einhverjum tímapunkti í lífi listamannsins og hefur Snædís farið aftur í að rækta sköpunarhæfileikana.
Snædís sækir innblástur úr litum og fegurð náttúrunnar, úr fjöllunum, lífsreynslunni og tilfinningum. Náttúran er stórkostlega mögnuð og vill hún skapa verk sem hver og einn getur tengt við á sinn hátt. . . Lesa meira