Karfan mín
Karfan þín er tóm.
Haltu áfram að leita að verki hér.
Ég upplifði þjónustuna á Apollo art mjög jákvæða og hraðvirka. Listamaður hafði nánast samstundis samband og gekk ferlið mjög fagmannlega og fljótt fyrir sig. Ég er mjög sátt með viðskiptin og fallega verkið mitt.
Sandra Blöndal
Þægilegt viðmót til að skoða listaverk og fræðast um listmálarana. Örugg og fljót þjónusta. Samskipti við listamenn til fyrirmyndar. Mun versla áfram við Apollo art í nánustu framtíð.
Eiríkur Ronald Jósefsson
Snögg og góð þjónusta. Listamaðurinn svaraði samdægurs og við keyptum verkið og fengum það seinna sama dag!
Nafnlaust
Ég fékk faglega og örugga þjónustu. ÉG grunaði það aldrei að ég færi á netið og keypti listaverk, og ekki bara 1 heldur 2. Ég gæti alveg hugsað mér að versla fleiri listaverk. Mjög góðir listamenn hjá Apollo.
Linda Solberg
Hef 2x verslað listaverk frá Apollo art og í bæði þau skipti gekk það fljótt og vel fyrir sig. Hef fengið verkin í hendur innan 2ja-3ja daga.
Nafnlaust
Gekk mjög vel, listamaðurinn kom með verkið daginn eftir kaup sem er frábært.
Nafnlaust
Mjög góð þjónusta. Listamaðurinn hafði strax samband við mig og kom með verkið sjálfur heim til mín innan tveggja sólarhringa.
Nafnlaust
Þessi vefur Apollo art er algjör snilld, margir listamenn aðgengilegir á einum stað. Kaupin eru einföld og örugg. Takk fyrir þennan frábæra vef.
Nafnlaust
Apollo art svaraði fljótt og örugglega öllum fyrirspurnum og kom mér í samband við listmálarann. Einnig var greiðslufyrirkomulagið mjög þægilegt. Mæli eindregið með að skoða og kaupa verk af síðunni þeirra.
Nafnlaust
Góð þjónusta listamannsins afgreiðslan gekk hratt og vel fyrir sig sem skiptir máli fyrir mig.