Sesselja Tómasdóttir er fædd og uppalin í Ólafsvík, þar sem Snæfellsjökull rís hæst fjalla og sólsetur og sólarupprás eru stórkostleg. Sem barn lék hún sér úti í náttúrunni, hvort sem var við sjóinn eða á fjöllum. Í uppvextinum naut hún þess að hlusta á goðsagnir um drauga, tröll og álfa.
Sesselja lauk BS-gráðu í myndmenntakennslu frá Kennaraháskóla Íslands (1991-1994) og hélt síðan rakleiðis í grunnnám við Listaháskóla Íslands (LHI) þar sem hún lauk B. Fa.-prófi árið 1999. Þegar hún var í LHÍ dvaldi hún sem skiptinemi í þrjá mánuði við Winchester School of Arts í Winchester á Englandi sem er í samstarfi við Royal Academy of Art í London. Þar naut Sesselja leiðsagnar virtra prófessorum samhliða safnaferðum til London, Amsterdam og Parísar. Sesselja er meðlimur í Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Sesselja hefur rekið þrjú gallerí, ásamt eigin vinnustofu. Hún er einn af stofnefndum Grósku, félag myndlistarmanna í Garðarbæ. Sesselja hefur haldið fjölda einka- og samsýninga hér á landi sem erlendis. Hún var valin í Portrait nu sem er norræn portraitsamkeppni sem haldin er árlega í Friðriksborgarhöll í Danmörku.
Verk Sesselju eru innblásin af hugleiðingum hennar um traust á eigin skynjun og þeirri hugmynd að sanna þekkingu sé aðeins að finna innra með okkur sjálfum. Þekkja röddina í þínu eigin hjarta. Þora að vera hluti af öllum heiminum, sem þátttakandi í einu stóru andlegu ferli. Andleg vera sem vex upp úr sameiginlegum, óendanlega frjóum jarðvegi með virðingu og tengingu við umhverfi sitt.
Í verkum sínum málar Sesselja með olíulitum á striga og notar stundum blandaða tækni þar sem hún vinnur með ljósrit, teikningar og olíumálun. Sesselja kennir myndlist samhliða listsköpun sinni.
Einkasýningar 
2009 - 2015 Karlmenn, Laugarvegi 7, Reykajvík, Ísland 
2009  Mokka kaffi, Skólavörðustíg, Reykjavík, Ísland 
2008  Kaffi Loki, Lokastíg, Reykjavík, Ísland 
2007  Fjöruhúsið, Hellnum, Snæfellsbæ, Ísland 
2006  Pakkhúsið í Ólafsvík, Ísland 
2002  Kaffitár, Reykjavík, Ísland 
2001  Listhús Ófeigs, Reykjavík, Ísland 
2023 Bókasafn Garðabæjar
Samsýningar 
2009-2013  Jónsmessusýning, Garðabæ, Ísland
2009  Listgjörningur 20 listakvenna.  Garðabæ, Ísland
2009  Samsýning 18 listamanna á Garðatorgi, Garðabæ, Ísland
2008  PORTRAET NU ! Norskfolkemuseum, Bydo, Noregur 
2008  PORTRAET NU ! Ljungberg artmuseum, Ljungby, Svíþjóð 
2008  PORTRAET NU !  Amos Andersons listasafninu, Helsinki, Finnland 
2007  PORTRAET NU !  Hafnarborg, Hafnarfirði, Ísland 
2007  PORTRAET NU !  Brewer J.C Jacobsen´s Portrait Award, Fredriksborg-casle in Hilleröd Danmörku 
2007  Bryggjusýning, Kopavogur, Ísland
2006  Stígamót, afmælissýning, Reykjavík, Ísland
2005  Galerie du Sofitel, Strasbourg, Frakklandi
2005  Listahátíð á Laugarvatni „Gullkistan“, Laugarvatn, Ísland 
2005  Galeriazero, Barcelona, Spánn 
2004  Háskólabíó, Reykajvík, Ísland
2003  Gallerí Fold, Reykjavík, Ísland 
2002  Gallerí List, Reykajvík, Ísland 
2001-2002  Gallerí Snegla, Reykjavík, Ísland 
2001  Hótel Elborg, Snæfellsnes, Ísland 
2000  Gallerí Fold, Reykjavík, Ísland 
1999  Gallerí Listakot, Reykjavík, Ísland
1999  Gallerí Nema hvað, Reykjavík, Ísland 
1999  „The Very Positive and Affimative Reykjavík Tea Party“, Ísland
1997  Sumargallerí Vesturgötu, Reykjavík, Ísland

                          Sýna minna