Guðrún Ingólfsdóttir, betur þekkt sem Gingó, er myndlistarkona frá Höfn í Hornafirði, fædd árið 1958. Náttúra og dýralíf Íslands, einkum ríki Vatnajökuls, móta verk hennar þar sem litir og landslag mætast með sterku sjónrænu afli. Hún útskrifaðist árið 2008 af hönnunarbraut Iðnskólans og Myndlistarskólanum í Reykjavík með áherslu á keramik, leirrennslu og listmálun undir handleiðslu Þorra Hringssonar. Hún hefur einnig numið silfursmíði og sótt vinnustofu í listmálun á Ítalíu.
Eftir áberandi feril í frjálsum íþróttum sneri Gingó sér alfarið að myndlist og hefur unnið sem sjálfstæður listamaður í yfir tvo áratugi. Hún kennir einnig listmálun og keramík, og hefur haldið. . . Lesa meira
Guðrún Ingólfsdóttir, betur þekkt sem Gingó, er myndlistarkona frá Höfn í Hornafirði, fædd árið 1958. Náttúra og dýralíf Íslands, einkum ríki Vatnajökuls, móta verk hennar þar sem litir og landslag mætast með sterku sjónrænu afli. Hún útskrifaðist árið 2008 af hönnunarbraut Iðnskólans og Myndlistarskólanum í Reykjavík með áherslu á keramik, leirrennslu og listmálun undir handleiðslu Þorra Hringssonar. Hún hefur einnig numið silfursmíði og sótt vinnustofu í listmálun á Ítalíu.
Eftir áberandi feril í frjálsum íþróttum sneri Gingó sér alfarið að myndlist og hefur unnið sem sjálfstæður listamaður í yfir tvo áratugi. Hún kennir einnig listmálun og keramík, og hefur haldið eigin námskeið og tekið nemendur á vinnustofur sínar. Gingó flutti sig um set á Akranes þar sem hún sinnir sinni listsköpun í dag. Hún er meðlimur í Listfélagi Akraness.
Listsýningar:
2007: Málverkasýning á Kaffi-Horninu, Höfn. Akrýlmálverk. Sýning á lokaverkefni í keramikmótun - Landsbankinn á Höfn í Hornafirði.
2008: Málverkasýning á Kaffi-Horninu, Höfn. Akrýlmálverk.
2009: Málverkasýning á Kaffi-Horninu, Höfn. Akrýlmálverk. Þáttakandi í Pecha Kucha spjalli í Listasafni Reykjavíkur, sandkertaglærur. Samsýning hönnuða í Nýheimum á Hornafirði, leirverk og sandkerti úr ríki Vatnajökuls Kertasýning á N1, kerti og kertaker.
2010: Ljóða-ljós sýning í Kartöflugeymslunni á Höfn. Ljósaskúlptúrar og ljóðalestur í anda draumheima.
2011: Vorið. Sýning í Miklagarði á Höfn. Blönduð tækni. Náttúra á striga. Pakkhúsið á Höfn. Málverk.
2013: Lífsdans. Listasafn Hornafjarðar. Olíumálverk.
2019: Farandsýningin Fuglar, sýnd á völdum stöðum á Höfn í Hornafirði.
2020: Samsýning “Það sem kyndir ofninn” í menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, listasafn Svavars Guðnasonar.

Sýna minna