TRYGGÐARBÖND
Stærð: 180x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"TRYGGÐARBÖND er lofgjörð til vináttu, samstöðu og órjúfanlegra tengsla. Tindarnir rísa hlið við hlið, tengdir ósýnilegum böndum trausts og trúfesti. Þeir hafa staðið af sér storma og él. Í formi tindanna þeirra speglast styrkur, samheldni, hinn kyrrláti kraftur þess að standa saman, jafnvel þegar vindar blása hvassast. Verkið minnir á að sönn vinátta er djúp og sterk.
Tindarnir eru stækkuð brot úr Eystrahorni."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.