Það kemur aftur vor
Stærð: 60x60 cm.
65x65 cm í hvítum flotramma.
Tækni: Akrýl á striga.
Kristín Berta hefur alltaf verið heilluð af því hvernig orð og myndir tala saman og finnst henni gjarnan sem málverkin hafi sögu að segja eða þau komi með einhver skilaboð.
Þessu málverki fylgir eftirfarandi texti:
Það kemur aftur vor
-Ljóðið um vonina-
Það haustar og laufin sölna.
Þannig líður þeim sem sakna sárt;
Eins og sölnandi laufi.
Það er erfitt að lifa án.
Kemur einhvern tímann aftur vor?
Verður aftur gaman?
Verður hægt að lifa?
Með síðasta haustlaufinu,
Þegar þú hlustar djúpt undir berum himni
Heyrir þú undurfallegan hlátur.
Þú heyrir hvíslað í laufskrúði trjánna.
„Það kemur aftur vor, hjartað mitt, það kemur alltaf aftur vor.“
„Megi vonin ávallt fylgja þér“
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Kristín Berta
Kristín Berta Guðnadóttir er fædd og uppalin í Reykjavík en býr í Hafnarfirði með fjölskyldu sinni. Áhugi hennar á myndlist kviknaði í barnæsku þegar hún sótti hin ýmsu námskeið hjá Myndlistaskóla Reykjavíkur. Hún hefur með hléum allar götur síðan sótt myndlistarnámskeið og þá aðallega í olíumálun t.d. hjá Þorra Hringssyni í Myndlistarskóla Reykjavíkur, Rúnu Gísladóttur sem rak myndlistarskólann Myndmál, Þuríði Sigurðardóttur, Einari Hákonarsyni og svo námskeið í blandaðri tækni hjá Hermanni Árnasyni auk fleiri námskeiða í akrýl málun og blandaðri tækni.
Í dag notar Kristín Berta. . . Lesa meira