Nýtt upphaf
Stærð: 70x100 cm.
Tækni: Akrýl og blönduð tækni á striga.
Hver dagur er nýtt upphaf. Nýtt upphaf getur verið stórkostlegt en krefjandi á sama tíma. Það getur innihaldið góðar tilfinningar eins og tilhlökkun og von og líka sorg yfir því að kveðja eitthvað sem við skiljum eftir á leið okkar um lífið. Nýtt upphaf getur verið alls konar. Það getur verið nýr staður sem við förum á líkamlega ef við flytjum frá einu heimili til annars eða byrjum nýja vinnu eða nám. Það getur líka verið nýtt upphaf innra með okkur. Þar sem við reitum arfa til að búa til pláss fyrir ný blóm í garði hugans. Nýtt upphaf getur leynst í hverju augnabliki þegar við veljum hvert við beinum sjónum okkar. Við getum dvalið í gömlum sögum eða búið til nýjar. Hver dagur er nýtt upphaf. Töfrar og möguleikar leynast á hverju strái ef við höfum opin augu og opið hjarta.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli
Staðsetning listaverks
1. Ef sækja á verk er gott að vita staðsetningu listamanns. Staðsetning listamanns kemur fram undir heiti verks hér fyrir ofan.
2. Setja í körfu
Fyrst þarf að bæta verki í körfu. Í körfunni þarf að haka í og samþykkja skilmála áður en gengið er frá kaupum. Áður en haldið er áfram í afhendingarmáta þarf að fylla inn upplýsingar um viðtakanda.
3. Afhendingarmáti
Í boði er að sækja verkið á vinnustofu listamanns eða að fá verkið sent heim. Ef valið er að sækja hefur listamaður samband og gefur upp nákvæma staðsetningu á vinnustofu.
4. Greiðsluleiðir
Greiðslu getur þú innt af hendi á ýmsa vegu: Kredit- og debetkort, millifærsla í banka, reiðufé eða Netgíró, Aur, Pei til þess að borga/dreifa/fresta greiðslum.
5. Afhending á verki
Þegar greiðsla hefur borist fær listamaður upplýsingar um kaupin. Listamaður hefur samband við kaupanda, við fyrsta tækifæri, og undirbýr verkið fyrir afhendingu.
6. Afhendingartími
Við leggjum metnað í afhendingartíma og því hafa listamenn oftar en ekki samband samdægurs til þess að afhenda verk.
Sjá skilmála fyrir ýtarlegri upplýsingar.

Kristín Berta
Kristín Berta Guðnadóttir er fædd og uppalin í Reykjavík en býr í Hafnarfirði með fjölskyldu sinni. Áhugi hennar á myndlist kviknaði í barnæsku þegar hún sótti hin ýmsu námskeið hjá Myndlistaskóla Reykjavíkur. Hún hefur með hléum allar götur síðan sótt myndlistarnámskeið og þá aðallega í olíumálun t.d. hjá Þorra Hringssyni í Myndlistarskóla Reykjavíkur, Rúnu Gísladóttur sem rak myndlistarskólann Myndmál, Þuríði Sigurðardóttur, Einari Hákonarsyni og svo námskeið í blandaðri tækni hjá Hermanni Árnasyni auk fleiri námskeiða í akrýl málun og blandaðri tækni.
Í dag notar Kristín Berta. . . Lesa meira