New Beginnings
Stærð: 50x50 cm.
Tækni: Eftirprent á pappír (Museum Heritage 310 gsm).
Upplag: 50 eintök.
Listaverkaeftirprent af upprunarlegu verki listamanns. Gefið út í 50 tölusettum og árituðum eintökum.
"Verkið New Beginnings eftir Snædísi Högnadóttur er eitt af hennar uppáhalds verkum. Hún sækir innblástur í þau augnablik í lífinu þegar við stöndum frammi fyrir erfiðum en jafnframt mikilvægum ákvörðunum sem geta mótað framtíð okkar og lífsstefnu. Á slíkum tímamótum gefst okkur tækifæri til að velja hvort við stöndum í stað eða höfum hugrekki til að stíga inn í hið óþekkta, vaxa og dafna. Því þegar einar dyr lokast opnast aðrar dyr að nýjum tækifærum og lærdómi."
Ath: Selst ekki í ramma.
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Snædís Högnadóttir
Snædís Högnadóttir eða SOGNA er fædd í Vestmannaeyjum en uppalin í Kópavogi. Hún kemur af listamannafjölskyldu og hefur listin alltaf verið í henni. Sem barn teiknaði hún mikið, málaði, skrifaði ljóð og sögur og hannaði föt. Þegar sköpunarhæfileikum er ekki sinnt mun þörfin alltaf brjótast fram á einhverjum tímapunkti í lífi listamannsins og hefur Snædís farið aftur í að rækta sköpunarhæfileikana.
Snædís sækir innblástur úr litum og fegurð náttúrunnar, úr fjöllunum, lífsreynslunni og tilfinningum. Náttúran er stórkostlega mögnuð og vill hún skapa verk sem hver og einn getur tengt við á sinn hátt. . . Lesa meira
