MORGUNLJÓS
Stærð: 100x100 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"MORGUNLJÓS ber með sér nýja daga, von og gleði. Dögun er tími þegar fegurð og ró sameinast, þegar heimurinn er umluktur í kyrrð og hugarró. MORGUNLJÓS gefur loforð um ný tækifæri og áminningu um að á hverjum degi er nýtt tækifæri til að skapa eitthvað dýrmætt."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.

Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.