LJÓSASKIL
Stærð: 100x150 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Þegar degi hallar leitar hugurinn yfir farin veg. Hann staldrar við það sem snerti hjartað og það sem varð að fallegri minningu. Í LJÓSASKILUNUM verður allt skýrara, allt hefur sinn tilgang. Dagurinn hverfur og leggst varlega til hvíldar í kyrrðinni. Hugsanirnar róast, þakklætið vaknar og í hjartanu kvikna LJÓSASKIL. Því í lok hvers dags býr ekki aðeins kveðja, heldur einnig friður, von og þakklæti fyrir liðin dag."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.