KYRRÐ HERÐUBREIÐAR
Stærð: 120x150 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Herðubreið, þetta tignarlega fjall, er tákn um kyrrð og friðsæld. Með sínum háa kolli býður hún okkur að finna dýrmæta fjallakyrrð. Hljóð heimsins dofna í vindinum og heimurinn hverfur í fjarska. Þegar sólin sest og rökkur færist yfir minnir Herðubreið okkur á mikilvægi þess að staldra við og njóta augnabliksins."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.

Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.