HRÍMFESTA
Stærð: 200x150 cm.
Tækni: Olía og akrýl á striga.
"Í faðmi vetrarins rísa Uxatindar, tignarlegir og hljóðir, sveipaðir hvítri mjöll. Föl birta strýkur hrímgaða fjallshryggi og djúpir skuggar hvíla í kyrrum hlíðum. Þar sem himinn og jörð renna saman ríkir órofin þögn, og fegurð hins ósnortna lands birtist í allri sinni tign.
Verkið sýnir hluta af Uxatindum á hálendi Íslands"
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.