HAFFRIÐUR
Stærð: 80x120 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Í hljómi hafsins býr kyrrð. Öldurnar hvísla að landi og ljósið hvílir á haffletinum. Þar sem himinn og haf mætast verður heimurinn hljóðlátari og eftir stendur HAFFRIÐUR, sú ró er ber hugann heim."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.