Golan sunnan að
Stærð: 30x42 cm.
39x51 cm í kartoni.
Tækni: Akrýl og blek á 300g vatnslitapappír.
"Innblástur þessa verks kemur frá hversdagslegri útiveru í blárri birtu og tilfinningu sem verður til á einu andartaki. Sunnangola líður yfir andlitið og augun leggjast ósjálfrátt aftur um leið og ástúðleg hlýindin strjúka vanga. Hnjúkaþeyr kemur sunnan að."
Ath: Selst ekki í ramma.
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Sigrún Ása Sigmarsdóttir
Sigrún Ása, fædd 1957, er Kópavogsbúi og þar er vinnustofa hennar. Auk þess að vera ljóðskáld hefur hún sótt námskeið í myndlist undir leiðsögn ýmissa kennara og er félagi í Vatnslitafélagi Íslands.
Pappír og vatn eru í aðalhlutverki og skapa sviðið fyrir liti. Rauði þráðurinn í verkunum er náttúruleg form, oft með vísun í lífrænan plöntuheim. Hið smágerða og fínlega er kallað fram með sterkum litum og áferð. Pappírinn sjálfur og spennandi yfirborð hans kveikir hugmyndir, ásamt flæðandi eiginleikum vatnslitanna sem blandast frjálsir á fletinum. Strigi er líka notaður og blönduð tækni. Verkin eru lagskipt þar sem pastel, akrýl,. . . Lesa meira