Franskir hnútar
Stærð: 30x20 cm.
40x30 cm í kartoni.
Tækni: Akrýl, blek og vatnslitir á vatnslitapappír.
Bródering og frjáls útsaumur sem listakonan stundar inniheldur gjarnan svokallaða franska hnúta. "Hér fara þræðirnir á flug og þeir gætu verið að breytast í blóm eða tré, fagna þjóðhátíðardegi eða afmæli þar sem þeir svífa upp í gleðilitum."
Ath: Selst ekki í ramma.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.

Sigrún Ása Sigmarsdóttir
Sigrún Ása Sigmarsdóttir (f. 1957) er búsett í Kópavogi. Hún hefur sótt námskeið hjá ýmsum listamönnum og er félagi í Vatnslitafélagi Íslands. Gegnum tíðina hefur hún útfært hugmyndir sínar í alls kyns handverki og eftir hana hefur komið út ein ljóðabók, Siffon og damask, 2018. Hún hefur fært sig á nýjar slóðir með aldrinum og vinnur nú með markvissari hætti við það sem henni er svo eðlislægt, myndlistin fær stærri sess. Hún veitir einstakt tækifæri til að takast á við streitu, sorg og gleði hversdagsins meðan unnið er. Tilfinning ræður hvernig verkin flæða fram og verða til án forskriftar þar. . . Lesa meira