Framboð (Baráttukonur)
Stærð: 20x20 cm.
Tækni: Akrýl, blek og collage á striga.
"Innblástur að seríunni “Baráttukonur með blóm í brjósti” er kvennaárið sterka 2025. Myndefnið vísar í von undir yfirborði, reynslu og þann kraft og þunga sem þarf til að rótin sé sterk og raddir heyrist."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Sigrún Ása Sigmarsdóttir
Sigrún Ása Sigmarsdóttir (1957) nýtur þess að fara í Grasagarðinn, ferðast um heiminn, sauma út og sauma í vél, gera við hluti, elska fólkið sitt, eiga samræður og læra alls konar nýtt. Hún er í hjarta sínu barnabókavörður, enda mikilvægasta vinnan á starfsferlinum, rak eitt sinn heildverslun og var upplýsingafræðingur hjá Mbl og Rúv. Er líka Zentangle/flæðiflúr/teiknidútl leiðbeinandi.
Myndlistarferillinn hóf að blómstra við 63 ára aldurinn en Sigrún hefur sótt námskeið hjá nokkrum kennurum. Rauði þráðurinn í verkunum er náttúruleg form. Þar er sterk vísun í lífrænan plöntuheim, hið smágerða og fínlega er kallað fram með notkun sterkra lita og. . . Lesa meira
