Fögnuður
Stærð: 30x23 cm.
34x28 cm í hvítum flotramma.
Tækni: Akrýl á striga.
"Þetta verk kemur úr málverkaröð þar sem innblástur verkanna var sóttur í skugga blóma, trjágróðurs og neikvæðu formanna sem myndast á milli þeirra. Skuggaform þeirra varpast á veggi og jörð þar sem þau færast, teygjast, breytast og dansa með ljósinu í síbreytilegri birtu. Listakonan tengir skuggaformin einnig við litbrigði mannlegs lífs. Í lífinu forðast margir skuggahliðar sjálfsins en ef við þorum að varpa ljósi á skuggana uppskerum við gjarnan okkar mesta vöxt og þroska."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Kristín Berta
Kristín Berta Guðnadóttir er fædd og uppalin í Reykjavík en býr í Hafnarfirði með fjölskyldu sinni. Áhugi hennar á myndlist kviknaði í barnæsku þegar hún sótti hin ýmsu námskeið hjá Myndlistaskóla Reykjavíkur. Hún hefur með hléum allar götur síðan sótt myndlistarnámskeið og þá aðallega í olíumálun t.d. hjá Þorra Hringssyni í Myndlistarskóla Reykjavíkur, Rúnu Gísladóttur sem rak myndlistarskólann Myndmál, Þuríði Sigurðardóttur, Einari Hákonarsyni og svo námskeið í blandaðri tækni hjá Hermanni Árnasyni auk fleiri námskeiða í akrýl málun og blandaðri tækni.
Í dag notar Kristín Berta. . . Lesa meira