FJARSKALJÓS
Stærð: 120x150 cm.
Tækni: Akrýl á striga.
"Snæfellsjökull rís úr fjarskanum, kyrr og dularfullur, þar sem himinn, haf og land renna saman í mjúkri birtu. Yfir jöklinum hvílir sérstök nærvera, kyrrð sem býr yfir bæði styrk og leyndardómi. Hann stendur sem hljóður vörður landsins, mótaður af tíma og náttúruöflum."
Upplag
Lesa meira.
14 daga skilaréttur
Lesa meira.
Kaupferli og afhending
Lesa meira.
Heimsent eða sótt
Lesa meira.
Unnur Guðný (UGG)
Unnur Guðný María (UGG) er fædd og uppalin í Reykjavík. Efnistökin eru olía og akrýl á striga en litapallettan kemur úr náttúru Íslands sem er einmitt helsta viðfangsefni hennar. Unnur stundaði nám í myndlist (olíumálun, portrait, tækniteikningu ofl.) bæði í Myndlistarskóla Reykjavíkur og Kópavogs. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum. Verk Unnar eru mörg sveipuð dulúð og kyrrð og flest vísa í verk eldri íslenskra ljóðskálda.